Erlent

Enginn talinn hafa lifað af

Mynd/AP
Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af. Vélin var á leið frá Multan og ætlaði til Lahore og þaðan til höfuðborgarinnar Islamabad, en fórst tíu mínútum eftir flugtak. Ekki er vitað hvað olli því að flugvélin hrapaði, Hún var af gerðinni Fokker F-27 og var um fjörtíu ára gömul.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×