Innlent

60 grömm af amfetamíni

Þrír menn voru handteknir í Hafnarfirði um tvö leytið í nótt, eftir að lítilræði af fíkniefnum, sem lögregla telur vera amfetamín, fannst í bifreið þeirra. Karlmennirnir eru á aldrinum 25 til 30 ára og hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður.

Bifreiðin var stöðvuð við reglubundið eftirlit lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi. Í framhaldi af handtöku mannanna var gerð húsleit í Reykjavík, þar sem sextíu grömm af amfetamíni fundust.

Mennirnir játuðu við yfirheyrslur að eiga efnin og var sleppt að þeim loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×