Innlent

Flugvél Continental lenti heilu og höldnu

Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Continental Airlines lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan tíu mínútur yfir fjögur en hún óskaði eftir að heimild til lendingar vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 757-200, er með 172 menn innanborðs og var töluverður viðbúnaður á flugvellinum að þeim sökum. Vélin var á leið frá Gatwick-flugvelli í Lundúnum til Newark í Bandaríkjunum þegar bilunin kom upp en orsakir hennar eru óljósar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×