Skoðun

Það er gott að stjórna með óttanum

Kannast einhver við að hafa látið þessi orð falla við sinn undirmann, eftir að hafa verið sett til forystu hjá ÍSAL-ALCAN.

Þegar Ragnar Halldórsson var forstjóri, hlustaði hann á skoðanir starfsmanna á gólfinu án þess að þeir fengju mínusstig. Það mátti brosa og vera með glens. Síðustu ár hafa aðrir stjórnarhættir tekið við.

Starfsmenn ganga með veggjum og þora vart að ræða saman.

9. maí 1998 lenti ég í mjög alvarlegau slysi á vinnustað mínum hjá ÍSAL og var vart hugað líf. Ég var í öndunarvél í 3 vikur og síðan 6 mánuði á sjúkrahúsinu. Eftir það var mér boðin vinna í hliðgæslu. þar sem ég hafði ekki þrek til að fara til minna fyrri stafa. Fyrirtækið lækkaði með því laun mín umtalsvert. Trúnaðarmaður reyndi ásamt aðaltrúnaðarmanni árangurslaust að sýna forstjóra fram á að samkvæmt kjarasamningi ætti ég að halda óbreyttum launum í 1 ár eftir slysið.

Ég var niðurbrotinn eftir slysið, en aðför Rannveigar forstjóra að mér braut mig gersamlega niður. Rafiðnaðarsambandið hafði staðið á hliðarlínunni og vonast til þess að hægt væri að leysa málið innan fyrirtækisins, en sá hvert stefndi hjá mér og kom svo inn í málið eftir að trúnaðarmenn höfðu árangurslaust reynt í hálft ár. Fyrirtækið vildi losna við að borga slysabætur. Eftir að Rafiðnaðarsambandið hafði unnið málið fyrir mína hönd á öllum dómstigum, hefur Rannveig Rist haft horn í síðu minni, ásamt deildarstjóra Gunnari Guðlaugssyni og öryggisfulltrúa Halldóri Halldórssyni.

Halldór öryggisfulltrúi var kærður fyrir einelti af undirmanni sínum. Málið fór fyrir eineltisteymi fyrirtækisins, sem ásamt ráðgjafaþjónustu í bænum leit á mál Halldórs mjög alvarlegum augum. En í skrifstofubyggingunni birtist hönd sem þaggaði málið niður. Kæranda og þolanda var síðan sagt upp störfum!! Halldór hefur ítrekað verið staðinn að ósannindum m.a. gagnvart eiginkonu minni í málaferlum mínum gagnvart fyrirtækinu.

Hroki og mannvonska hefur einkennt þessa aðila í minn garð og starfsmanna sem ekki eru nægilega undirlátir og sýna viðeigandi ótta. Í lok vinnudags fimmtudaginn 5. október 2006 komu sendiboðar af skrifstofu til mín og tjáðu mér að þess væri óskað að ég hætti strax störfum hjá fyrirtækinu. Ég spurði um ástæðu og svarið var að þau væru ekki ánægð með störf mín. Engin önnur ástæða. Allan þann tíma sem ég hef unnið hjá ÍSAL hefur aldrei verið kvartað undan störfum mínum eða ástundun í vinnu.




Skoðun

Sjá meira


×