Innlent

Býður sig fram í annað sætið

Una María Óskarsdóttir býður sig fram í 2. sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Kjör um sex efstu sætin fer fram á kjördæmisþingi 4. nóvember næstkomandi.

Una María var varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Kópavogs á síðasta kjörtímabili og gegndi formennsku í Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogs síðustu tvö kjörtímabil. Una María er nú formaður jafnréttisnefndar Kópavogs og varamaður í skólanefnd Kópavogs.

Una María hefur sem varaþingmaður einu sinni tekið sæti á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×