Innlent

Látinn laus úr haldi

Fangavörðurinn á Litla-Hrauni sem handtekinn var síðasliðinn laugardag vegna fíkniefnasmygls var látinn laus úr haldi í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi telst málið upplýst.

Fangavörðurinn var gripinn með þrjú hundruð grömm af hassi og var einnig með í fórum sínum harðari efni. Fangavörðurinn er rúmlega tvítugur og hafði starfað í sumarafleysingum á Litla-Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×