Innlent

Enn á ný kveikt í tunnu í Hampiðjuhúsinu

Enn á ný var  kveikt í rusli í Hampiðjuhúsinu í Reykjavík um sjöleytið í kvöld en slökkviliðið hafði áður verið  kallað á staðinn klukkan tvö í dag. Slökkviliðið hefur slökkt eldinn en töluverður reykur hafði myndast í húsinu. Húsið var svo reykræst í annað skiptið í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×