Erlent

Banni létt af Finnair vél

Rússnesk yfirvöld hafa aflétt flugbanni af Finnair vél sem var kyrrsett í dag vegna þess að geislavirkni fannst við mælingar í henni. Talsmaður flugfélagsins segir að geislunin hafi verið vegna farms sem vélin var að flytja frá Rússlandi til Finnlands. Hann hafi verið fullkomlega löglegur, og geislunin innan við öll hættumörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×