Innlent

Sjálfstæðismenn í Árborg með prófkjör á morgun

Frá Selfossi
Frá Selfossi

Sjálfstæðismenn í Árborg velja á morgun fulltrúa sína í prófkjöri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Fimmtán gefa kost á sér, tíu karlar og fimm konur. Fjórir karlar sækjast eftir fyrsta sætinu, Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri, Páll Leó Jónsson aðstoðarskólastjóri, Sigurður Jónsson forstöðumaður og Snorri Finnlaugsson svæðisstjóri. Kosið verður á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri milli klukkan tíu og átján og er von á fyrstu tölum fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×