Birna stefnir ofarlega á lista sjálfstæðismanna í NV-kjördæmi 25. september 2006 14:15
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, hefur ákveðið að gefa kost á sér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Í tilkynningu frá Birnu segir að þar sem ekki liggi enn fyrir með hvaða hætti verður raðað á lista flokksins telji hún ótímabært að tiltaka ákveðið sæti, en hún bjóði sig fram ofarlega á listann. „Ég tel nauðsynlegt að fulltrúar nýrrar kynslóðar skipi sér í framvarðasveit Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og blandi sér í hóp þeirra reynslumiklu þingmanna flokksins sem fyrir eru og hafa leitt hagsmunabaráttu íbúa kjördæmisins á Alþingi. Með sveitarstjórnarreynslu mína í farteskinu vil ég leggja þeirri baráttu lið, en mörg brýn verkefni bíða úrlausnar í kjördæminu," segir Birna. Birna er varaþingmaður í kjördæminu eftir að hafa skipað 7. sæti á lista flokksins fyrir síðustu alþingiskosningar. Hún var kjörin í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 1998 og leiddi þá lista sjálfstæðismanna en skipaði annað sætið í kosningunum 2002 og 2006. Hún hefur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1999 og gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum innan flokksins sem og á sviði sveitarstjórnarmála eins og segir í tilkynningu frá henni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Sjá meira