Innlent

Jeppi og fólksbíll skullu saman á Kjalarnesi

Fólksbíll og jeppi skullu saman á Kjalarnesi um fimmleytið í gær með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Kona var flutt á slysadeild en ekki er talið að um alvarleg meiðsl á fólki hafi verið að ræða. Það tók um hálftíma að klippa bílstjóra jeppabifreiðarinnar úr flakinu. Þjóðvegur eitt var lokaður í tvær klukkustundir á meðan lögregla og sjúkralið athafnaði sig á slysstað. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er líðan konunnar góð en hún var þó lögð inn til frekari rannsóknar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×