Innlent

Erlendum félagsmönnum í VR fjölgar um þriðjung



Félagsmönnum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur með erlent ríkisfang hefur fjölgað um nær þriðjung á ári og eru nú 650 eftir því sem fram kemur á heimasíðu VR. Tíu prósent eða 66 manns eru frá Danmörku en fast á hæla þeirra eru Pólverjar, þá Þjóðverjar, Bandaríkjamenn, Júgóslavar og Bretar. Alls koma félagsmenn VR frá 78 þjóðlöndum utan Íslands en í fyrra voru löndin 66 talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×