Lífið

Talsmaður neytenda mætir deildarstjóranum

Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum, sem sýndur verður á Stöð 2 kvöld mætast þeir Stefán Már Halldórsson deidlarstjóri starfskjaradeildar Landsvirkjunar og Gísli Tryggvason talsmaður neytenda.

Í síðustu viðureign kom sá og sigraði hinn ungi aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskólann, Snorri Sigurðsson, er hann lagði alþingismanninn Sigurð Kára Kristjánsson. Í fyrstu viðureigninni lagði Inga Þóra Ingvadóttir sagnfræðingur Þorvald Þorvaldsson smið. Í öðrum þættinum, lagði blaðamaðurinn og fyrrum Gettu betur-sigurvegarinn Steinþór H. Arnsteinsson framhaldsskólakennarann Erling Hansson eftir æsispennandi og hnífjafna viðureign.



Stefán Már Halldórsson

Stefán starfar sem deildarstjóri starfskjaradeildar Landsvirkjunar. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík frá 1969 og stundaði nám í þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands. Stefán Már er 56 ára að aldri og helstu áhugamál hans eru tónlist, bridge, ferðalög, veiðar, kvikmyndir og bókmenntir. Hann er félagi í karlakórnum Fóstbræðrum, til 24 ára. Sérsvið sín segir Stefán Már vera sitt lítið af hverju í hinu og hann segist aldrei áður hafa tekið þátt í spurningakeppni í fjölmiðlum.



Gísli Tryggvason

Gísli starfar sem talsmaður neytenda. Hann er stúdent frá íþrótta- og málabraut Marie Kruses Skole á Norður-Sjálandi í Danmörku 1989. Tók embættispróf í lögum frá lagadeild Háskóla Íslands 1997 og lauk MBA-prófi með áherslu á mannauðsstjórnum frá viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík 2004 þar sem hann hlaut viðurkenningu Verslunarráðs (nú Viðskiptaráðs) Íslands fyrir framúrskarandi árangur á MBA-prófi. Gísli er 36 ára að aldri og hefur áhuga á fjölskyldunni, garðinum og lestri. Hann segist ekki eiga sér neitt ákveðið sérsvið í vitneskju. Fyrri afrek hans á sviði spurningakeppna teljast engin.



Meistarinn er nýr alíslenskur spurningaþáttur sem hóf göngu sína annan í jólum og hefur farið geysivel af stað. Þátturinn hefur þegar vakið mikið umtal í fjölmiðlum enda eiga eftir að etja þar kappi margir af helstu spurningahaukum þjóðarinnar og verður því úr skorið hver sé í raun og reynd Íslandsmeistari í spurningakeppnum, hinn eini og sanni Meistari.

Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:00 og endursýndur á mánudögum kl. 22.55.

Vefsvæði Meistarans






Fleiri fréttir

Sjá meira


×