Innlent

Kosið um sameiningu fjögurra sveitarfélaga

Frá Húsavík.
Frá Húsavík. MYND/KK

Íbúar Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps kjósa í dag um sameiningu sveitarfélaganna. Íbúar þessara fjögurra sveitarfélaga samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum síðasta haust en þá var sameiningu hafnað í þremur sveitarfélögum og því féll tillagan.

Kosið er á fjórum stöðum í dag en kjörfundur stendur misjafnlega langt yfir. Lengst verður kosið á Húsavík, eða til klukkan tíu í kvöld, aðrir kjörstaðir loka klukkan fimm og sex síðdegis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×