Sport

Hefur fullan stuðning leikmanna

Stóllinn er heitur hjá Souness
Stóllinn er heitur hjá Souness Nordic Photos/Getty Images
Leikmenn enska knattspyrnuliðsins Newcastle United, hafa komið til varnar þjálfara sínum, Graeme Souness og segjast styðja hann heilshugar. Þrátt fyrir það virðist sem að starf hans hangi á bláþræði eftir tap helgarinnar gegn Blackburn. Peter Ramage, varnarmaður Newcastle segir að allir leikmenn standi samt sem áður þétt að baki þjálfara sínum. ,,Það er erfitt fyrir okkur leikmennina að heyra þetta því okkur finnst öllum hann vera frábær þjálfari. Hann þjálfar eins og hann spilaði, með því að gefa sig hundrað prósent í verkefnið og ég veit að hann er staðráðinn að breyta gangi liðsins til hins betra."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×