Innlent

Í farbann vegna dópsmygls

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um farbann var staðfestur í Hæstarétti.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um farbann var staðfestur í Hæstarétti.

Hæstiréttur hefur dæmt mann í farbann meðan réttað er í máli gegn honum vegna stórfellds fíkniefnasmygls. Maðurinn er talinn hafa smyglað tæpum fjórum kílóum af hassi og einu kílói af amfetamíni sem voru falin í bíl sem kom hingað með Norrænu frá Danmörku þrettánda þessa mánaðar.

Ákærði var handtekinn í Breiðholti tveimur dögum síðar. Hann sætti gæsluvarðhaldi þar til á mánudag en farbanni eftir það þar sem hann hafði leigt sér íbúð í Danmörku auk þess sem sonur hans býr þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×