Innlent

Þremenningar játa á sig hraðbankarán

MYND/Róbert

Tveir karlmenn og ein kona, sem handtekin voru vegna gruns um að hafa brotið upp hraðbanka í söluskála Skeljungs á Fáskrúðsfirði og stolið þaðan hundruðum þúsunda króna, hafa viðurkennt brotið og vísað á þýfið.

Ekki fæst uppgefið hjá lögreglu um hversu mikið fé var að ræða nákvæmlega eða hvar það var falið en fólkið mun enn vera í yfirheyrslu. Lögregla á Fáskrúðsfirði varð áskynja um ránið klukkan fimm í morgun og gerði mörgum lögregluumdæmum viðvart. Fólkið var svo stöðvað og handtekið í bílaleigubíl á Akureyri á níunda tímanum í morgun og hefur nú játað á sig glæpinn sem fyrr segir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×