Viðskipti innlent

Vöruskipti óhagstæð um 11,4 milljarða

Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar nam útflutningur í janúar 14,1 milljarði króna, en innflutningur 25,5 milljörðum. Á sama tíma í fyrra nam útflutningur 12,9 milljörðum, en innflutningur tæpum 17,3. Miðað er við fast gengi.

Verðmæti innflutningsins var 47,5 prósentum meira en í janúar 2005. Mest jókst innflutningur neysluvara og flutningatækja,  um 23,6 og 14,2 prósent, meðan innflutningur á mat og drykkjarvöru dróst saman um 5,4 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×