Innlent

Þrettán ára drengur ók á umferðarskilti

MYND/AP

Ökuferð þrettán ára ökumanns á stolnum bíl endaði á tveimur umferðarskiltum í Hafnarfirði í gærmorgun, en drengurinn slapp ómeiddur þótt bíllinn skemmdist mikið. Hann hafði tekið bílinn ófrjálsri hendi af foreldrum sínum í Grindavík um nóttina og ekið til Hafnarfjarðar þegar hann missti stjórn á honum. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan að fjórtán ára telpa var tekin úr umferð á stolnum bíl og var hún líka ölvuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×