Innlent

Fjórir dæmdir fyrir misþyrmingar

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. MYND/KK

Héraðsdómur Norðurlands Eystra hefur dæmt mennina fjóra, sem réðust á 17 ára pilt á Akureyri fyrir ári, misþyrmdu honum og skildu eftir klæðalítinn í húsasundi í frosti.

Þyngsti dómurinn var 18 mánaða fangelsi, en sá sem þann dóm hlaut, var í leiðinni dæmdur fyrir ýmis önnur afbrot. Mönnunum var einnig gert að greiða piltinum rúmar 700 þúsund krónur í miskabætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×