Innlent

Impregilo sakfellt vegna vangoldinna launa

MYND/Ómar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun ítalska verktakafyrirtækið Impregilo til að greiða portúgölskum starfsmanni við Kárahnjúka tæpa milljón auk dráttarvaxta, vegna vanreiknaðra launa. Samiðn höfðaði málið fyrir hönd Portúgalans. Hann hafði verið ráðinn sem trésmiður en fékk verkamannalaun. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hans til að fá leiðréttingu gekk það ekki og tók Samiðn þá málið upp á sína arma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×