Innlent

Nauðgaði stúlku á stigagangi

Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stúlku á stigagangi heimilis hennar. Stúlkan var mjög ölvuð og þótti dómnum sýnt að maðurinn hefði misnotað sér ástand hennar.

Stúlkan sagðist hafa hnigið niður á stigapalli og manninn þá girt niður um sig og haft mök við sig en hún ekki komið neinum vörnum við. Maðurinn sagði stúlkuna hafa lagst niður á stigapallinn og dregið sig til sín, þetta hefði hann túlkað sem vilja til samfara. Í dómnum segir að þessi skýring sé fráleit, ekki síst í ljósi þess sem á undan var gengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×