Innlent

Eldri maður barinn og rændur

Karlmaður á sjötugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að tveir menn réðust á hann og rændu hann í Vesturbænum í gærkvöldi. Maðurinn var á göngu nærri gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu þegar mennirnir réðust á hann, börðu hann í jörðina og létu höggin dynja á honum.

Mennirnir höfðu veski og farsíma mannsins af honum en hann komst alblóðugur á bensínstöð í grenndinni og var lögregla þá kölluð á staðinn. Gert var að sárum mannsins á slysadeild og fékk hann að fara heim að því loknu enda meiðslin ekki alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×