Sport

Pires ekki í viðræðum við Rangers

Robert Pires er ekki í viðræðum við Rangers
Robert Pires er ekki í viðræðum við Rangers NordicPhotos/GettyImages

Umboðsmaður franska miðjumannsins Robert Pires hjá Arsenal segir að leikmaðurinn sé ekki í viðræðum við nein önnur félög um nýjan samning, en breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Pires ætti í viðræðum við skoska liðið Glasgow Rangers.

"Robert er um þessar mundir að fara yfir samningstilboð frá Arsenal og eins staðan er í dag er ekkert annað lið inni í myndinni," sagði umboðsmaður hans. Pires vill fá þriggja ára framlengingu á samningi sínum, en Arsenal vill aðeins framlengja samninga eldri leikmanna sinna um eitt ár í senn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×