Innlent

Dæmdur fyrir nauðgun

22 ára gamall karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn nítján ára stúlku. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði notfært sér ölvun stúlkunnar og svefndrunga til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.

Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur í skaðabætur og verður að greiða 900 þúsund krónur í málskostnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×