Innlent

Sjálfstæðisflokkur fengi meirihluta í borginni

Við Reykjavíkurtjörn.
Við Reykjavíkurtjörn.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta í borgarstjórn ef kosið væri nú samkvæmt skoðanakönnun Gallup en fylgi flokksins minnkar þó talsvert frá síðustu könnun.

Flokkurinn fengi 47 prósent atkvæða og átta borgarfulltrúa samkvæmt könnuninni sem greint var frá í kvöldfréttum RÚV. Samfylkingin fengi 36 prósent og sex borgarfulltrúa og Vinstri grænir ellefu prósent og einn borgarfulltrúa. Framsókn mælist með þrjú prósent og Frjálslyndir með tvö prósent en hvorugur flokkur fengi mann í borgarstjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×