Innlent

Slegist á Ísafirði

Tveir fengu að gista fangaklefa lögreglunnar á Ísafirði í nótt eftir stimpingar fyrir framan veitingastað í bænum. Fleiri tóku þátt í áflogunum en þessir tveir höfðu sig helst í frammi og voru því handteknir.

Annar hinna handteknu er nú farinn til síns heima en hinn dvelur enn í fangaklefa. Þá var einn tekinn grunaður um ölvunarakstur upp úr klukkan sex í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×