Viðskipti innlent

FL Group og fleiri kaupa Refresco

FL Group hf. hefur í samstarfi við aðra fjárfesta keypt hollenska  drykkjarvöruframleiðandann Refresco Holding B.V. (Refresco) af fjárfestingasjóðnum 3i Plc. Heildarkaupverð, ásamt skuldum, er um 461 milljón evra, 42 milljarðar íslenskra króna. FL Group verður stærsti hluthafi félagsins ásamt m.a. Vífilfelli og helstu stjórnendum Refresco.

FL Group verður stærsti hluthafi félagsins með 49 prósenta eignarhlut, en meðal annarra fjárfesta eru Vífilfell og helstu stjórnendur Refresco. Fjárfesting FL Group nemur um fimm milljörðum króna.

Kaupin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda í Þýskalandi.

Hjá Refresco starfa um 1.200 manns í 5 löndum en félagið er annar stærsti framleiðandi á ávaxtasöfum og svaladrykkjum undir vörumerkjum verslana (e. private label) í Evrópu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×