Lífið

Tangóhelgi í Reykjavík

Helgarnámskeið með tangóparinu Damián Essel og Nancy Louzán frá Buenos Aires, verður í Kramhúsinu helgina 28. - 30. apríl. Parið mun einnig sýna á tangókvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 29. apríl.

Damien og Nancy koma nú í fyrsta sinn til Íslands, og er það mikið tilhlökkunarefni fyrir íslenska tangóunnendur. Auk þess að vera stórkostlegir dansarar eru þau frábærir kennarar og njóta hvarvetna mikilla vinsælda. Þau hafa kennt og sýnt argentínskan tango á mörgum þekktustu tangóstöðum og tangóhátíðunum bæði í Buenos Aires í Argentínu og víða í Evrópu, m.a. í Svíþjóð, Grikklandi, Þýskalandi, Írlandi, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Israel, Austurríki, Hollandi, Ítalíu og Japan.

Boðið er upp á námskeið bæði fyrir þá sem eru nýbyrjaðir að dansa tangó og fyrir vana dansara. Upplýsingar og skráning er í Kramhúsinu við Bergstaðarstræti í síma 5515103 og á www.kramhusid.is.

Frekari upplýsingar um Argentískan tangó á íslandi er að finna á www.tango.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×