Innlent

Tekjutenging verður ekki afnumin

MYND/VG

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segist ekki stefna að því að fella niður tekjutengingu almannatryggingabóta. Þetta kemur fram í svari hennar við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.

Siv segir að með afnámi tekjutengingar væri dregið úr þeim jöfnuði sem hún stuðlar að þar sem þeir sem geti framfært sér án bóta fengju þá jafnháar bætur og þeir sem geta það ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×