Innlent

Samningafundur í dag ráði miklu um framhaldið

Samningafundur í kjaradeilu starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefst klukkan eitt í dag, ræður miklu um framhaldið og hvort til setuverkfalls og jafnvel uppsagna starfsmanna kemur. Formaður Eflingar er ekki bjartsýnn eftir að deilan hljóp í hnút á fundi í gærkvöldi.

Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónstu hafa undanfarna daga fundað og reynt að leysa kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á dvalarheimilum aldraðra. Kröfur starfsmanna eru sambærileg laun og fólk fær hjá sveitarfélögunum fyrir sambærileg störf en þar getur munað allt að 30 þúsund krónum á mánuði.

Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að það hafi kveðið við jákvæðan tón á fundi á föstudag en fundurinn í gær hafi verið skref aftur á bak að hans mati. Hann segir ekki deilt um tölur heldur hvenær hækkanir komi til framkvæmda. Efling vilji að þær komi til framkvæmda strax eða á mjög afmörkuðum tíma en það hafi viðsemjendur þeirra ekki viljað fallast á.

Sigurður er ekki bjartsýnn og segir að forsvarsmenn dvalarheimilanna verði að gera sér grein fyrir alvarleika málsins. Dagurinn í dag ráði miklu um framhaldið. Hann hafi tilfinningu fyrir því að ef menn nái ekki að leysa hlutina í dag þá sé hætta á að það slitni upp úr viðræðunum. Aðspurður segir hann að þá blasi við setuverkfall og fjöldauppsagnir sem starfsmenn hafi boðað.

Jóhann Árnason, formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisrekstri, tekur undir það að málin skýrist væntanlega í dag og hann vonar að samningar náist áður en að setuverkfall skellur á á miðnætti á fimmtudag.

Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, talsmanns starfsmanna, eru einhverjir þegar farnir að huga að uppsögnum en starfsmenn ætla að hittast á fimmtudag áður en að boðað setuverkfall skellur á og ræða málin ef ekki hefur verið samið þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×