Innlent

Kjarasamningar sex félaga samþykktir

Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svo kölluð HugGarðsfélög.

Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra fræða og Stéttarfélag lögfræðinga samþykktu samninginn með öllum greiddum atkvæðum. Samningurinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafræðinga, Útgarði og Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×