Lífið

Styrktartónleikar Ljóssins

Frá stofnfundi Ljóssins í janúar sl.
Frá stofnfundi Ljóssins í janúar sl.

Selkórinn ásamt hljómsveit, ætlar á laugardag að efna til tónleika til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Tónleikarnir verða í Neskirkju og gefa allir sem að tónleikahaldinu koma, vinnu sína.

Á efnisskránni er fjöldi þekktra laga og syrpur úr vinsælustu söngleikjum samtímans.

1. What a wonderful world. G.David Weiss og Bob Thiele
2. Spinning wheel. David Clayton Thomas
3. Broadwaysyrpa Irvin Berlin
4. Syrpa af lögum úr "My Fair Lady" Frederick Loewe
5. Syrpa af lögum úr "West Side Story" Leonard Bernstein
6. Radetsky Mars Johann Strauss
7. Vín, Vín þú aðeins ein..... R. Sieczynski.
8. Inngöngumars úr " Zigaunarbaróninn" J.Strauss
9. Lagasyrpa úr "Kátu ekkjunni" Frans Léhar
   
 

Hljómsveitina skipa

Kjartan Valdimarsson píanó

Hjörleifur Valsson fiðla

Gunnar Hrafnkelsson bassi

Kjartan Guðnason slagverk

  Stjórnandi Selkórsins er Jón karl Einarsson

 

Tónleikarnir verða í Neskirkju laugardaginn 6. maí og hefjast klukkan 17:00.

Hægt er að panta miða hjá Ljósinu í síma 561-3770, 695-6636 eða á netfangið ljosid@ljosid.org.

Miðinn kostar kr. 2.500, og rennur allur ágóði til Ljóssins, þar sem kórinn og hljómsveit gefur alla vinnu og kirkjan leggur til húsnæðið.

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar -og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Yfirmarkmið Ljóssins er að efla lífsgæði á erfiðum tímum efla tengsl á milli manna, traust, hjálpsemi og aðstoð og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn hefur í för með sér.

Krabbameinsgreindir, aðstandendur og allir þeir sem áhuga hafa á starfsemi Ljóssins hafa aðgang að endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðinni. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem mannlegar áherslur eru í fyrirrúmi og fólk upplifir sig velkomið.

Ljósið hefur aðsetur í Neskirkju (gamla safnaðarheimilinu) og hefur Erna Magnúsdóttir iðjuþjálfi yfirumsjón með starfinu.

Hægt er að gerast styrktaraðili að Ljósinu með því að skrá nafn og kennitölu á netfangið ljosid@ljosid.org.

Félagsgjöld eru 2.500, kr. á ári.

Heimasíða Ljóssins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×