Sport

KR deildarbikarmeistari

Deildarbikarmeistarar KR-A : Davíð Löve, Björn Birgisson, Björn Sigurðsson
Deildarbikarmeistarar KR-A : Davíð Löve, Björn Birgisson, Björn Sigurðsson

A-lið KR varð í gærkvöld Deildarbikarmeistari í keilu, en leikið var í Mjódd. KR-liðið var með 201 meðaltal í úrslitunum og KR-B hafnaði öðru sæti með 199 í meðaltal og er það til marks um þá breidd sem KR hefur í keilunni í dag.

Í þriðja sæti urðu síðan ÍR-KLS með 188 í meðaltal og Íslandsmeistarar liða, ÍR-PLS, urðu síðan í því fjórða. KR-A vann þennan titil síðast árið 2004. Þess má geta að lokum að KR-B keppir til úrslita í bikarkeppni liða í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×