Innlent

Bakslag í fasteignaviðskiptum

Verulegt bakslag hefur orðið í fasteignaviðskiptum á höfuðborgarsvæðinu síðustu vikur. Um þriðjungi færri kaupsamningum var þinglýst í apríl en í mars. Þetta þykir að mati sérfræðinga ótvírætt benda til minni spennu á fasteingamarkaði, og að verðlækkun sé á næstu grösum.

Engum hefur dulist hve gríðarlega fasteignaverð hefur hækkað hér á landi síðustu ár, en það hefur meira en þrefaldast á rétt rúmum áratug. Nú bendir hins vegar allt til þess að þessi þróun hafi stöðvast, og muni jafnvel snúast við á næstunni. Frá því í fyrra hafa blikur verið á lofti og fasteignum á söluskrá hefur fjölgað gríðarlega, þótt hægar hafi dregið úr sölu en margir höfðu reiknað með. Nú virðist markaðurinn hins vegar hafa stigið á bremsuna.

Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins var um þriðjungi færri kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum apríl heldur en í mars. Í apríl stimpluðu sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu 613 samninga, samtals upp á nærri 17 milljarða króna, en í mars voru þetta yfir 900 samningar upp á samanlagt yfir 23 milljarða. Samdrátturinn nemur því um þriðjungi, hvort sem horft er til fjölda samninga eða samanlagðs söluandvirðis fasteignanna.

Meðalupphæð á samning hækkaði þó lítillega, fór úr 27,5 milljónum í 25,5 milljónir króna. Ein hugsanlegra skýringa á þessu er sú, að hér sé um árstíðarbundna lækkun að ræða. Sú virðist þó ekki raunin, að minnsta kosti ekki ef bornir eru saman aprílmánuður í ár og apríl í fyrra. Þar sést líka mikill samdrátt, hvort sem er í fjölda samninga eða heildarveltu.

Allt bendir því til hins sama, hvort sem er aukið framboð eigna, sú staðreynd að bankarnir pressa nú á verktaka að draga saman seglin, eða það að kaupsamningum fækkar jafn mikið á milli mánaða og tölur Fasteingamatsins sýna. Fasteingaverð er hætt að hækka, og þótt sérfræðingar telji ólíklegt að verðið lækki mikið - ef nokkuð - þá heldur fasteignaverð ekki, og það mun ekki breytast, í við verðlag. Raunverðslækkun á fasteignum er því er staðreynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×