Innlent

Dæmdur fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi karlmann í dag til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás. Hann var hins vegar sýknaður af annarri ákæru um líkamsárás þar sem hún þótti ekki sönnuð.

Tveir af fjórum mánuðum fangelsisvistarinnar eru skilorðsbundnir. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa ráðist að öðrum manni á Ráðhústorgi fyrir tveimur árum og barið hann þremur höggum í andlitið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×