Innlent

Á 191 kílómetra hraða á Reykjanesbraut

MYND/Róbert

Lögreglan í Keflavík veitt bíl eftirför í nótt sem mældist á 191 kílómetra hraða á klukkustund á leið vestur Reykjanesbraut. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að komast undan með því að slökkva öll ljós á bílnum. Ökumaðurinn stöðvaði þó á endanum bifreiðina á Fitjabraut þar sem hann hljóp úr henni ásamt þremur farþegum. Var allur hópurinn handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var ökumaðurinn var sviptur ökuskírteini til bráðabirgða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×