Innlent

Bílveltur á Mýrum og Hrútafjarðarhálsi

Tvennt var flutt á slysadeild á Akranesi eftir að bíll valt á Snæfellsnesvegi á Mýrum skammt frá bænum Álftá í morgun. Alls voru þrír bílnum og er talið að ökumaður hafi misst stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann fór tvær eða þrjár veltur. Fólkið mun ekki vera mikið slasað. Þá valt bíll við þjóðveg eitt á Hrútafjarðarhálsi í nótt eftir að ökumaður hafði ekið honum út af. Ökumaðurinn var fluttur til Reykjavíkur með sjúkrabifreið en ekki er vitað um líðan hans. Grunur leikur á að maðurinn hafi verið ölvaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×