Innlent

Ekkert verður af setuverkfalli

Ekkert verður af setuverkfalli stuðningsfulltrúa hjá svæðisskrifstofum fatlaðra sem átti að hefjast í kvöld. Trúnaðarmenn starfsmanna samþykktu nýgerðan stofnanasamning á fundi í hádeginu og var hann undirritaður klukkan þrjú.

Samningurinn felur í sér að laun stuðningsfulltrúa hækka til samræmis við laun starfsmanna í sambærilegum störfum hjá sveitarfélögum. Þar sem um stofnanasamning er að ræða þarf ekki að greiða um hann atkvæði heldur tekur hann þegar gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×