Lífið

Silvía Nótt komst ekki áfram

MYND/AP

Lagið Congratulations í flutningi Silvíu Nætur komst ekki áfram í úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fara á laugardag. Undankeppni fór fram í kvöld og flutti Silvía íslenska lagið síðust keppenda. Flutningur stjörnunnar var mikið sjónarspil sem endranær og óhætt er að segja hið sama um búning Silvíu.

Íslendingar hafa eflaust safnast saman víða í Evróvisjónpartíum um landið og fylgst spennt með flutningi Silvíu. En eins og oft áður virðist sem Evrópa kunni ekki að meta þau góðu lög sem héðan koma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×