Innlent

KB banki hækkar líka vexti sína

MYND/Pjetur

KB banki fylgir í kjölfar Glitnis og SPRON og hyggst hækka vexti óverðtryggðra og verðtryggðra lána. Er það gert eftir tilkynningu Seðlabankans í gær um hækkun stýrivaxta um 0,75 prósentustig. Óverðtryggðir vextir hækka um á bilinu 0,5 til 0,75 prósentustig og vextir af nýjum íbúðalánum verða frá og með mánudeginum 4,75 prósent en þeir voru 4,6 prósent fyrir hækkun.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×