Viðskipti innlent

Tap Vestmannaeyjabæjar 424 milljónir króna

Frá Vestmanneyjum.
Frá Vestmanneyjum. Mynd/Hari

Vestmannaeyjabær skilaði 424,4 milljóna króna tapi á síðasta ári. Þetta er 113,5 milljónum krónum meira tap en árið á undan þegar það nam rúmum 310, 8 milljónum króna. Fjárhagsáætlun bæjarins gerði hins vegar fyrir 199 milljóna króna tapi.

Í ársuppgjöri Vestmannaeyjabæjar segir að rekstrarafkoman sé ekki viðunandi og ljóst að rekstur málaflokka taki til sín of stóran hluta af sameiginlegum tekjum. Þeirri þróun þurfi að snúa við með markvissum aðgerðum.

Rekstrartekjur bæjarins námu tæpum 2,4 milljörðum króna en það er 222,7 milljónum krónum meira en árið á undan. Þá var rekstrarniðurstaða bæjarins fyrir skatta og fjármagnsliði neikvæð um tæpar 269,4 milljónir króna sem er rífleg tvöföldun á milli ára.

Rekstrareiningar Vestmannaeyjabæjar flokkast í A-hluta og B-hluta. Í A-hluta er Aðalsjóður, Eignarsjóður, Áhaldahús, Grjótnám og Malbikunarstöð en í B-hluta fráveita, Hafnarsjóður, félagslegar íbúðir, Sorpeyðingarstöð, líkamsræktarsalur, Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja, Náttúrustofa Suðurlands og Dvalarheimilið Hraunbúðir. Þessar rekstrareiningar eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar og eru fjármagnaðar að mestu leyti með þjónustutekjum.

Í ársreikningunum segir að laun vegi þyngst í rekstri bæjarfélagsins en þau eru rúm 62 prósent af rekstrartekjum hjá Aðalsjóðin en um 57% (60% árið 2004) hjá Samstæðu. Þetta er nokkur lækkun milli ára og stefnt er að því að koma þessu hlutfalli enn neðar.

Þá segir í ársreikningunum að rekstur málaflokka í A-hluta stóðst þokkalega miðað við fjárhagsáætlun. Tekjur urðu 27 milljónum krónum undir undir áætlun og útgjöld, án lífeyrisskuldbindinga, afskrifta og fjármagnsliða, urðu 78 milljónum krónum yfir áætlun.

Í B-hlutanum voru meiri sveiflur miðað við fjárhagsáætlun. Tekjur voru tæpum 100 milljónum krónum umfram áætlun en almenn rekstrargjöld um 50 milljónum króna umfram áætlun. Í heild varð reksturinn 83 milljónum króna umfram áætlun sem skýrist að mestu leyti af reiknuðum liðum, s.s. breytingu lífeyrisskuldbindinga, afskriftum og verðbótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×