Sport

Jafntefli í Grindavík

Grindvíkingar og Keflvíkingar gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í síðari leik kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum á bragðið á 33. mínútu, en Guðmundur Steinarsson jafnaði metin úr víti skömmu síðar.

Síðari hálfleikurinn var heldur daufari en sá fyrri, enda aðstæður erfiðar til að leika fallega knattspyrnu í rokinu í Grindavík. Það bar helst til tíðinda í síðari hálfleiknum að þeim Stefáni Arnarsyni hjá Keflavík og Eyþóri Atla Einarssyni var báðum vikið af leikvelli í blálokin fyrir að láta skapið hlaupa með sig í gönur. Liðin hafa því bæði hlotið fjögur stig úr fyrstu þremur leikjum sínum í sumar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×