Innlent

Tvö fíkniefnamál í Kópavogi í nótt

Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi í nótt. Lögregla stöðvaði bíl við reglubundið eftirlit og kom þá í ljós að ökumaður og farþegi höfðu fíkniefni í fórum sínum. Leitað var í tveimur húsum í kjölfarið og fannst þá meira fíkniefnum. Um var að ræða amfetamín, MDMA og kannabisefnis en ekki í miklu magni. Þá voru fíkniefni gerð upptæk hjá öðrum ökumanni sem stöðvaður var í Kópavogi en þar var um enn minna magn að ræða að sögn lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×