Viðskipti innlent

Ópera fjárfestingar kaupa í Gretti

Ópera fjárfestingar ehf, gerði í dag kaupsamning við Sund ehf. um kaup á 15,55 prósentum hlutafjár í Fjárfestingafélaginu Gretti hf, sem er hluthafi í Straumi Burðarási Fjárfestingabanka hf. Ópera fjárfestingar ehf. er í jafnri eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að Björgólfur Thor Björgólfsson sé stjórnarformaður Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf.  








Fleiri fréttir

Sjá meira


×