Lífið

Bíllinn fundinn

Rauðum Subaru Legacy sem sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag að hefði verið stolið af plani við NFS í Skaftahlíð er fundinn. Bílnum var stolið aðfaranótt sunnudags en athugull lesandi Vísis þekkti bílinn af mynd á vefnum og lét vita af honum. Þjófarnir höfðu ekki farið lengra en upp að Sjómannaskóla og skildu bílinn þar eftir, svo til óskemmdan. Eigandinn hefur nú endurheimt bílinn og það eina sem hann saknar er hátalarapar.

 

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×