Innlent

Sex mánaða fangelsi fyrir að ráðast á lögregluþjón

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að ráðast á lögregluþjón. Lögreglan hafði komin manninum til hjálpar eftir að hann hafði ekið á skilti á umferðareyju og slasast á andliti. Í ljós kom að maðurinn var ölvaður og vegna þess að hann var slasaður var hann fluttur á slysadeild í lögreglubíl. Þar réðst hann á lögreglumann í aftursæti bílsins eftir að lögreglumaðurinn hafði tekið sígarettu úr munni hans. Hæfileg refsing er talin vera sex mánuðir en þrír þeirra eru skilorðsbundnir til tveggja ára í ljósi sakaferils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×