Búa í tjaldi 15. júní 2006 18:45
Pólverji sem vinnur á hóteli í Reykjavík hefur þurft að hírast í tjaldi í tvær vikur og sér ekki fyrir endann á því. Nokkrir aðrir Pólverjar sem komu hingað í leit að vinnu eftir fyrsta maí eru nágrannar hans á tjaldstæðinu í Laugardal. Prznek Gdak og Robert Makovski komu hingað til lands í leit að vinnu eftir að lög um vinnuafl frá nýju löndum Evrópusambandsins breyttust í byrjun maí. Þeir hafa nú fengið vinnu og húsnæði, eftir að hafa búið í þessu tjaldi síðan þeir komu til landsins.Prznek segir að ef þeir hefðu ekki fengið vinnu næsta mánuðinn hefðu þeir snúið aftur til Póllands. Þeir geti ekki þurrkað fötin sín og inni í tjaldinu sé allt blautt. Það hafi verið mjög kalt og þeir geti ekki hugsað sér að vera lengur í tjaldinuAndrzej Hara er tvítugur Pólverji sem hefur verið hér í einn og hálfan mánuð. Eftir að hann missti herbergið sitt á gistiheimili í borginni hefur hann búið í tjaldi. Þó að hann vinni á hóteli er það skammgóður vermir, því að þar býðst honum herbergi á níutíu þúsund, sem er svipað og hann fær í laun á mánuði. Nú er allt blautt nema skórnir. Hann segist samt ekki svartsýnn á framtíðina, þó að vissulega sé það erfitt þegar maður búi í tjaldi.Margrét Valgeirsson, sem rekur pólsku búðina í Hafnarfirði segist hafa heyrt af mörgum Pólverjum sem búi í tjaldi hér á landi á meðan þeir leiti sér að vinnu, en hún hafi ekki áður orðið beinlínis vitni að því.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Innlent Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Innlent Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Innlent Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Innlent Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Innlent Níu létust í árásinni í Vancouver Erlent Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Innlent Áætlun Trump gangi engan veginn upp Innlent Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Erlent Rúmur helmingur óhress með Trump Erlent Fleiri fréttir Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Vill selja bílastæðahús borgarinnar og Iðnó Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Mikill viðsnúningur hjá Árborg í fjármálum sveitarfélagsins Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum Áhyggjur leigubílstjóra og kólnandi hagkerfi Óvissa um heimshagkerfið og úrsögn Sólveigar Önnu „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Hefur áhyggjur af rekstri skólans undir Rafmennt Vita ekki hver áhrif fyrirætlanna Meta verða Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Nýtt og glæsilegt svínabú í Eyjafirði fyrir 400 gyltur Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni Útför páfa og afbrot leigubílstjóra Hreindýr í sjónum við Djúpavog Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Vanlíðan íslenskra ungmenna mikið áhyggjuefni Hælisleitendur bíði brottvísunar við óviðunandi aðstæður Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Bullandi hagnaður hjá Sveitarfélaginu Ölfusi Sjá meira