Sport

Verður frá í nokkra mánuði

Michael Owen á ekki sjö dagana sæla
Michael Owen á ekki sjö dagana sæla AFP
Framherjinn Michael Owen verður frá í nokkra mánuði vegna hnémeiðslanna sem hann hlaut í byrjun leiks gegn Svíum í gær og því heldur meiðslamartröð þessa lipra knattspyrnumanns áfram. Owen var nýstiginn upp úr meiðslum sem hann lenti í um áramótin og komst í raun aldrei í leikform á HM. Ekki hefur verið gefið upp hve lengi hann verður frá keppni, en talað er um nokkra mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×