Innlent

Hafði afskipti af 14 ára pilti vegna fíkniefnamáls

MYND/Róbert

Fjórtán ára piltur var sá yngsti í hópi sex manna sem lögreglan í Kópavogi hafði afskipti af í þremur fíkniefnamálum sem upp komu í bænum í gær. Fimm voru handteknir en vegna aldurs var aðeins haft afskipti af piltinum, sem viðurkenndi neyslu, og fá barnaverndaryfirvöld mál hans til meðferðar. Hinum var öllum sleppt eftir yfirheyrslur enda snerust öll málin um neyslu en ekki sölu. Mál þeirra verða send ákæruvaldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×